5. ágúst 2020

Uppfærðar leiðbeiningar vegna COVID-19

 Covid-19 upplýsingar til mjólkurframleiðenda varðandi breytingu á sýnatökum o.fl.

Selfossi 5. ágúst 2020   Uppfærsla

Ágætu mjólkurframleiðendur

Við sendum ykkur bestu kveðjur og óskir um að þið hugið vel að eigin heilsu og öryggi á þessum sérstæðu tímum.

Í ljósi aðstæðna sem upp eru komnar að nýju, þarf að grípa til sömu róttæku aðgerða og fyrr, til að tryggja framleiðsluferla MS og Auðhumlu. Öllum samlögum hefur verið lokað fyrir utanaðkomandi gestum.

Nokkur atriði sem gripið hefur verið til og vert er að vekja athygli á:

  • Ákveðið hefur verið að hætta tímabundið móttöku og mælingu á kýrsýnum, frumusýnum, gerlasýnum, fangsýnum og öðrum sýnum sem starfsmenn MS og Auðhumlu taka ekki sjálfir. Þetta er gert í samráði við aðgerðarhóp BÍ til að girða fyrir smitleiðir. Gildir þessi ráðstöfun meðan þetta ástand varir. Ekki verður tekið við sýnum hvorki í samlögunum né af bílstjórum. Þessi ráðstöfun tekur gildi í dag 5. Ágúst 2020. Ef upp koma neyðartilfelli þá endilega verið í sambandi við gæðaráðgjafa Auðhumlu. Varðandi tengingu á fjölda kýrsýna við beingreiðslur þá er í gildi undanþága  sem hefur verið virkjuð að nýju í samráði við AVR.
  • Gæðaráðgjafar eru ekki lengur með starfsaðstöðu í samlögunum. Þeir eru í tölvu- og símasambandi. Símanúmer eru á forsíðu Auðhumlu audhumla.is
  • Heimsóknir gæðaráðgjafa til mjólkurframleiðenda varðandi öflun aukasýna verða takmarkaðar eins og kostur er. Enginn framleiðendi verður heimsóttur nema í ýtrustu neyð og í samráði við viðkomandi.
  • Ef upp koma tilfelli þar sem vafi er um mjólkurgæði, verður alltaf fyrsti kostur að láta mjólkurbílstjóra taka sýni.
  • Hafið samband við gæðaráðgjafa ef eitthvað er óljóst.
  • Mjólkurbílstjórar eru nú með einnota hanska og handspritt meðferðis í mjólkurbílunum. Framleiðendur eru vinsamlegast beðnir um að hafa ílát eða poka utan við mjólkurhús þar sem bílstjórar geta losað sig við hanskana að notkun lokinni. Eins eru framleiðendur beðnir að forðast samskipti við bílstjóra eins og kostur er meðan þetta ástand varir.
  • Leiðbeiningar til matvælaframleiðenda er að finna á https://www.mast.is/is/um-mast/frettir/frettir/koronaveiran-og-framleidsla-graenmetis-og-dyraafurda   
  • Einnig eru góð ráð að finna hjá RML https://www.rml.is/is/starfsemi/frettir/smitvarnir-vegna-covid-19 

Ágætu framleiðendur.

Gætum vel að sóttvörnum og munið að við erum öll almannavarnir.

Með góðri kveðju

Garðar Eiríksson framkvæmdastjóri

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242