16. mars 2024

Aðalfundur Auðhumlu svf. 2024

Aðalfundur Auðhumlu svf. verður haldinn að Bitruhálsi 1 (MS) miðvikudaginn 24. apríl n.k. og hefst hann kl. 10.30

Á fundinn eru boðaðir alls 41 fulltrúi í 14 deildum Auðhumlu svf., stjórn og varastjórn félagsins auk boðsgesta.

Fundurinn er jafnframt opinn hinum almenna félagsmanni sem hefur þar málfrelsi og tillögurétt skv. 14. grein samþykkta Auðhumlu svf.

Dagskrá:

  • Fundarsetning
    • Kosning starfsmanna fundarins
    • Könnuð mæting fulltrúa 
  • Skýrsla stjórnar
    • Ágúst Guðjónsson, form. stjórnar
  • Ávarp stjórnarformanns MS
    • Elín M. Stefánsdóttir
  • Endurskoðaðir reikningar Auðhumlu svf. 2023 og tillaga stjórnar Auðhumlu svf. um ávöxtun stofnsjóðs og meðferð hagnaðar eða taps félagsins.
    • Jóhannes Hr. Símonarson, frkv.stj.
  • Skýrsla um starfsemi Mjólkursamsölunnar
    • Pálmi Vilhjálmsson, forstjóri MS
  • Umræður og afgreiðsla ársreiknings
  • Hádegishlé
  • Innsendar tillögur um breytingar á samþykktum
  • Kosið í stjórn samkvæmt 8. gr.
  • Kaffihlé
  • Kosnir skoðunarmenn samkvæmt 8. gr.
  • Kosinn endurskoðandi samkvæmt 8. gr.
  • Ákveðin upphæð aðildargjalds og tillags í stofnsjóð
  • Ákveðin  þóknun stjórnar, skoðunamanna og fulltrúa
  • Önnur mál

Fundarslit  

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242