30. júní 2017

Mjólk í mörgum myndum

Í vor var gerður samningur við Matís um verkefnið Mjólk í mörgum myndum þar sem veittir eru styrkir til frumkvöðlastarfs þar sem mjólk kemur við sögu sem hráefni.

8 umsóknir bárust um styrki og voru verkefnin af margvíslegum toga.

Á fundi stjórnar Auðhumlu 29. júní var ákveðið að veita að þessu sinni þrjá styrki:

1) Heillandi máttur lífrænnar mysu.        Kr. 3.000.000.-      Biobú og fleiri  

    Mysa er vel þekkt og mikið nýtt í ýmiskonar vörur um allan heim. Hins vegar hefur vantað uppá nýtingarmöguleikana og er miklu magni hent. Verkefnið stuðlar að því að nýsköpun og aukinni nýtingu          á lífrænni mysu sem í dag fellur til við framleiðslu mjólkurafurða Biobú. Nýting aukaafurðanna stuðlar að minni sóun í samræmi við Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna.

2) Jökla, íslenskur mjólkurlíkjör.             Kr. 3.000.000.-      Pétur Pétursson  

   Verkefnið hefur töluvert mikið nýnæmi þar sem aldrei áður hefur verið framleiddur áfengur drykkur úr íslenskri mjólk né verið nýtt mysa við gerð líkkjörs. Frumgerð vörunnar er tilbúin og mun styrkurinn nýtast í framhaldsvinnu vegna prófanna og vinnsluferla.            

3) Broddur byggir upp.                            Kr.    500.000.-      Birna G. Ásbjörnsdóttir og Guðmundur Ármanna Pétursson,

   STyrkur til forverkefnis um þróun heilsuvöru úr broddmjólk. Broddur er einstök afurð sem vart er nýtt á Íslandi í dag og ábrystur er afurð sem fáir þekkja og er hverfandi. Íslensk mjólk er einstök að vþí leiti að í henni er að finna Beta-Casein A2 sem hefur verið tannsakað í tengslum við heilsu.

Matís mun annast utanumhald verkefna

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242