6. febrúar 2023

Nýtt verð fyrir umframmjólk frá 1. febrúar 2023

Stjórn Auðhumlu svf. ákvað á fundi sínum 2. febrúar 2023 að afurðastöðvarverð fyrir umframmjólk verði að lágmarki kr. 75.- á hvern innlagðan liter á yfirstandandi verðlagsári. Þetta tekur gildi frá 1. febrúar 2023.

Þetta gildir þar til annað verður ákveðið. Út frá þessu verði verður síðan reiknað gæðaálag, verðfellingar og efnainnihald.

Á komandi mánuðum og misserum verður grannt fylgst með forsendum útflutnings mjólkurvara með tilliti til þróunar heimsmarkaðsverðs, kostnaðar- og gegnisþróun. Uppbætur verða svo greiddar eftir að lokauppgjör ársins hefur farið fram, ef forsendur verða til þess.

Útjöfnun síðasta árs var 6,7 milljónir lítra sem er óvenju mikið og greiðslumark ársins eykst um 2,5 milljónir lítra. Það er því full ástæða til að hvetja bændur til að framleiða upp í sitt greiðslumark.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242