9. febrúar 2024

Verð fyrir umframmjólk

Stjórn Auðhumlu svf. ákvað á fundi sínum 8. febrúar 2024 að afurðastöðvarverð fyrir umframmjólk verði áfram óbreytt eða kr. 85.- á hvern innlagðan lítra á yfirstandandi verðlagsári 2024. Þetta verð skal gilda þangað til annað verður ákveðið en þetta verð mun ekki lækka á yfirstandandi verðlagsári. Taka skal tillit til efnainnihalds mjólkurinnar líkt og hefðbundið er og út frá þessu verði skal jafnframt reikna gæðaálag og verðfellingar.

Uppbætur verði svo greiddar eftir að lokauppgjör ársins hefur farið fram ef tilefni gefst til.

Eins og fram kemur í frétt hér á undan ákvað stjórn Auðhumlu svf. á sama fundi að umframmjólk ársins 2023 skuli gerð upp á 90 kr/l. eftir að útflutningsuppgjör hefur farið fram og verða uppbætur vegna þess greiddar út samhliða uppgjöri janúarmánaðar þann 12. febrúar.

Áfram verður fylgst grannt með sölu og birgðahaldi sem og forsendum útflutnings mjólkurvara m.t.t. þróunar heimsmarkaðsverðs, kostnaðar- og gengisþróunar á komandi mánuðum og misserum.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242