Að loknum aðalfundi Auðhumlu svf. 2026
Aðalfundur Auðhumlu svf. 2026 fór fram í húsnæði MS að Bitruhálsi 1 þann 29. apríl sl.
Á aðalfundinum var ársreikningur Auðhumlusamstæðunnar 2025 samþykktur. Rekstrartekjur samstæðunnar námu rúmum 53,8 ma. króna sem er aukning um tæplega 5,0 ma. króna milli ára eða um 10,2%. Þessi hækkun er tilkomin vegna verðhækkana og söluaukningar, bæði á innanlandsmarkaði og erlendis - en sala á vörum erlendis nam um 9,5 ma. króna. Rekstrargjöld samstæðunnar námu samtals um 51,9 ma. króna og hækkuðu um 4,4 ma. króna milli ára (9,3%) sem leiddi til niðurstöðu upp á 247 millj. kr. hagnað á samstæðunni. Rekstrarhagnaður samstæðunnar fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var tæplega 3,3 ma. króna sem er hækkun um u.þ.b. 500 millj. króna milli ára en EBITDA ársins 2024 var um 2,8 ma. króna. Fjármagnsgjöld samstæðunnar lækkuðu nokkuð milli ára eða um u.þ.b. 90 millj. króna og námu heildar fjármagnsgjöld samstæðunnar um 945 millj. króna. Lækkunin stafar fyrst og fremst af endurfjármögnun á skuldum Mjólkursamsölunnar á síðari hluta ársins 2025 en áhrifa endurfjármögnunarinnar mun fyrst og fremst gæta á árinu 2026 og áfram. Eftir endurfjármögnun Mjólkursamsölunnar er meginþorri skulda samstæðunnar nú í verðtryggðum lánum en voru áður að megninu til í óverðtryggðum lánum sem leiddi til mikils útstreymis á fjármagni til að staðgreiða verðbólguáhrif. Með endurfjármögnun á skuldum Mjólkursamsölunnar skapast aukið lausafé til að fara í mjög nauðsynlegar framkvæmdir á húsnæði Mjólkursamsölunnar á Selfossi (sem þegar eru hafnar) og síðar á Akureyri. Ætlunin er því að nýta þetta svigrúm á lausafé til aukinna fjárfestinga og þar með eignamyndunar á móti hækkun langtímaskulda sem búast má við að gerist þegar lán eru verðtryggð.
Á árinu 2025 keypti Ísey útflutningur ehf., sem er eitt af dótturfélögum Auðhumlu svf., félagið Nordic Nutrition í Frakklandi sem séð hefur um sölu og dreifingu á Ísey skyri þar í landi. Sömuleiðis jók Ísey útflutningur ehf. eign sína í Skyr Wales ltd. í Bretlandi og á Ísey útflutningur ehf. þar með 90% í því félagi á móti 10% hlut þarlendra samstarfsaðila. Hjá Auðhumlusamstæðunni var fjöldi ársverka 486 í árslok 2025 og fjölgaði þeim á árinu um 21 á milli ára, bæði vegna kaupa Ísey útflutnings ehf. á þessum erlendu félögum sem og vegna fjölgunar starfa á Selfossi í skyrvinnslunni. Laun og launatengd gjöld samstæðunnar námu alls um 7,4 ma. króna á árinu 2025 samanborið við 6,7 ma. króna á árinu 2024 og nemur þessi hækkun um 11%. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar nam 47,0% í árslok 2025 á móti 50,0% í árslok 2024.
Kosningar
Á aðalfundi er stjórn félagsins kosin til eins árs í senn. Allir stjórnarmenn gáfu kost á sér til áframhaldandi starfa og fengu þeir allir kosningu.
Aðalstjórn Auðhumlu svf. því óbreytt frá fyrra ári en hún er þannig skipuð:
- Ágúst Guðjónsson, Læk í Flóa, formaður,
- Þórunn Andrésdóttir, Bryðjuholti í Hrunamannarheppi, varaformaður
- Magðalena Jónsdóttir, Drangshlíðardal, A.- Eyjafjöllum, ritari
- Elín Margrét Stefánsdóttir, Fellshlíð í Eyjafirði, meðstjórnandi
- Ásvaldur Þormóðsson, Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði, meðstjórnandi
- Björgvin R. Gunnarsson, Núpi í Berufirði, meðstjórnandi
- Guðmundur Ómar Helgason, Lambhaga á Rangárvöllum, meðstjórnandi
Á aðalfundinum buðu Ástþór Örn Árnason á Espihóli og Karen Björg Gestsdóttir á Kaldárbakka sig fram í varastjórn félagsins og hlutu þau bæði kosningu.
Varastjórn Auðhumlu svf. er því þannig skipuð:
- Karen Björg Gestsdóttir, Kaldárbakka í Borgarbyggð
- Ástþór Örn Árnason, Espihóli í Eyjafirði
- Sif Jónsdóttir, Laxamýri, S.-Þingeyjarsýslu
Annar tveggja skoðunarmanna félagsins var kosinn til tveggja ára. Baldur Helgi Benjamínsson á Ytri-Tjörnum í Eyjafirði var endurkjörinn skoðunarmaður og sömuleiðis varaskoðunarmaður hans, Valgerður Kristjánsdóttir, Mýrum III í V.- Húnavatnssýslu. Fyrir var skoðunarmaður reikninga Haraldur Einarsson á Urriðafossi í Flóa og Geir Árdal, Dæli í Fnjóskadal sem hans varamaður.
Endurskoðandi Auðhumlu svf. var kosin Deloitte ehf. og fyrir hönd þess; Benóní Torfi Eggertsson og Guðmundur Örn Árnason.
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Ásgeir Hrafn Símonarson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1240

