Gæðamál mjólkurframleiðandans - Lengi býr að fyrstu gerð
Gæðamálin eru einn mikilvægasti þátturinn við mjólkurframleiðsluna. Mikilvægt er að mjólkin komist leiðar sinnar frá bás til búðar í sem bestum gæðum.
Margar hættur geta orðið á vegi mjólkurinnar. Mikilvægt er að allir þeir sem koma að því ferli sýni vandvirkni frá degi til dags. Mikilvægt er að kæling virki ávallt sem skyldi, sem og virkni þess búnaðar sem er í notkun hverju sinni. “Mjólk er góð” er fullyrðing sem allir sem vinna við mjólkurframleiðslu og mjólkuriðnað þurfa að hafa að leiðarljósi.
Gæðaálag og verðfelling eru þættir sem ætlað er að stuðla að sem bestri mjólk.
Reynslan hefur sýnt að metnaður mjólkurframleiðenda, sem og þeirra sem vinna við mjólkurvinnsluna, er mjög mikilvægur þáttur í að framleiða góðar mjólkurvörur.