Lyfjaleifar í mjólk - verðfellingar og verklag

Óhöpp vegna þess að sýklalyf komast í tankmjólk valda árlega nokkru tjóni, bæði fyrir mjólkurframleiðandann sem fyrir því verður og jafnframt fyrir Auðhumlu svf. sem afurðastöð. Öll mjólk frá bændum sem kemur til inndælingar í afurðastöð er lyfjaprófuð og ef minnsti vottur af lyfjaleifum finnast í henni er mjólkinni umsvifalaust og undantekningarlaust fargað. Slík mjólk kemst því aldrei inn í afurðastöð.

Dæmi um lyfjaleifar og hvað það þýðir í verðfellingu

Ef lyfjaleifar finnast í mjólk framleiðanda sem send hefur verið í afurðastöð þá skal það innlegg ekki skráð og að auki skal innlegg viðkomandi viku verðfellt um 60% af afurðastöðvaverði mjólkur. Ef um fleiri en eitt tilfelli er að ræða frá sama framleiðanda innan sama mánaðar, þá verðskerðist innlegg mánaðar um 15% fyrir hvert tilfelli.

Sjá 4. gr. reglna um flokkun og verðfellingar mjólkur vegna líftölu, frumutölu, lyfjaleifa og frírra fitusýra.

Hér má nálgast leiðbeiningar til að forðast óhöpp hvað varðar lyfjaleifar

Hér má nálgast leiðbeiningar um verklag ef lyf greinist í mjólk frá framleiðanda

Hér má nálgast leiðbeiningar um verklag ef framleiðanda grunar að lyf hafi komist í tankmjólk

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Ásgeir Hrafn Símonarson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1240