Sýnataka
Gæðamálin eru einn mikilvægasti þátturinn við mjólkurframleiðsluna. Hver einasta mjólkursending frá sérhverju býli þarf að standast lágmarksgæðakröfur því ein skemmd sending getur eyðilagt tugi þúsunda lítra af mjólk. Mikilvægt er að mjólkurframleiðandinn haldi vöku sinni og tilkynni það strax til gæðaráðgjafa Auðhumlu svf. ef minnsti grunur er um að mjólkin sé gölluð eða ónothæf. Með fyrirbyggjandi aðgerðum, öguðum vinnubrögðum, reglubundnu eftirliti við mjaltir, kælingu og hreinlæti næst góður árangur og stöðugleiki við framleiðslu á hágæðamjólk.
Reglubundnir mjólkurflutningar eiga einnig að tryggja fullnægjandi meðferð mjólkurinnar.
Mjólkurbílstjóri tekur sýni úr mjólk á hverjum bæ í hvert sinn sem mjólk er tekin. Honum ber að tryggja að mjólkursýnin fái viðeigandi meðferð þar til þau koma á áfangastað.
Mjólkurbílstjóri skal hafa samband við gæðaráðgjafa Auðhumlu svf. ef eitthvað er óeðlilegt á dælingarstað og er honum óheimilt að taka einhliða ákvarðanir um dælingu eða ráðstöfun mjólkurinnar.
Flutningatæki og búnaður eiga að vera til fyrirmyndar í einu og öllu, hrein og vel þrifin, enda hluti af góðri ímynd mjólkurinnar. Viðeigandi geymsluaðstaða fyrir mjólkursýni á að vera í hverjum bíl.
Hér má nálgast kynningarbækling til bænda um sjálvirka sýnatöku á tanksýnum:
Kynningarbæklingur til bænda um sjálfvirka sýnatöku á tanksýnum