Auðhumla og Mjólkursamsalan eru framúrskarandi fyrirtæki 2024
Auðhumla svf. fékk í gær, 30. október, viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki 2024 og er þetta í fimmta skipti sem samvinnufélagið hlýtur þessa miklu viðurkenningu. Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra - en aðeins 2,5% íslenskra fyrirtækja teljast framúrskarandi. Að baki viðurkenningunni liggur bæði mikill undirbúningur og markviss vinna enda eftirsóknarvert að komast í þennan góða hóp íslenskra fyrirtækja.
Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði sem sett eru fram af Creditinfo og leggur Auðhumlusamstæðan öll mikinn metnað í að standast þær kröfur. Framúrskarandi fyrirtæki þurfa t.a.m. að hafa skilað ársreikningi til RSK á réttum tíma, vera í lánshæfisflokki 1-3, hafa sýnt jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) auk jákvæðrar ársniðurstöðu árin 2021-2023 og eiginfjárhlutfall þarf að lágmarki að hafa verið 20% síðustu tvö ár. Til viðbótar þurfa stærri fyrirtækin að standast ákveðnar kröfur um samfélagslega ábyrgð og sjálfbærni til að vera gjaldgeng á listann.
Mjólkursamsalan, stærsta eign samstæðunnar, hlaut einnig viðurkenningu sem Framúrskarandi fyrirtæki í fimmta sinn og á meðfylgjandi mynd má sjá þá Aðalstein H. Magnússon, sölu- og markaðsstjóra MS og Jóhannes Hr. Símonarson, framkvæmdastjóra Auðhumlu taka á móti viðurkenningunum.
Við þökkum Creditinfo fyrir okkur og óskum öllum fyrirtækjunum sem fengu samskonar viðurkenningu innilega til hamingju með árangurinn.
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1242