20. janúar 2025

Breyting á efnainnihaldi viðmiðunarmjólkur frá 1. janúar 2025

Samsetning meðalmjólkur breytist frá 1. janúar 2025 og verður eftirfarandi (með fyrirvara um staðfestingu Verðlagsnefndar búvöru):

Fita: 4,23%

Prótein: 3,38%

Fitan er sem sagt óbreytt frá fyrra ári en prótein lækkar úr 3,39% í 3,38%

Við útreikninga á efnainnihaldi meðalmjólkur, öðru nafni grundvallarmjólkur, er miðað við meðalefnainnihald síðustu þriggja ára, nú árin 2022, 2023 og 2024.

Vægi efnaþáttana í grundvallarverði mjólkur verður óbreytt, þ.e. hvor efnaþáttur vegur 50% af afurðastöðvarverði.

Gildandi lágmarksverð sem Verðlagsnefnd búvöru hefur áveðið (gildir frá 1.október 2024) er 136,30 kr/l. miðað við 1. flokks meðalmjólk.

Frá og með 1. janúar 2025 er verð á hverja fitu- og próteineiningu eftirfarandi:

Efnisþáttur Verð á efnaþátt Verð á fitu- og próteineiningu
Fita 68,1500 kr. 16,1111 kr/fitueiningu
Prótein 68,1500 kr. 20,1627 kr/próteineiningu

Útreikningur á verði til framleiðenda pr. lítra mjólkur er gerður með eftirfarandi hætti: 

(16,1111 *F%) + (20,1627 * P%) = kr. á lítra mjólk

Dæmi:

Mjólkurframleiðandi leggur inn í afurðastöð hrámjólk með 4,45% fitu og 3,35% fitu.

Viðkomandi mjólkurframleiðandi fær þá greitt fyrir þessa mjólk (16,1111 * 4,45) + (20,1627 * 3,35) = 139,24 kr/l. sem er þá 2,94 kr. hærra verð á hvern lítra en meðalmjólkin er. Ástæðan er að efnainnihald fitunnar hjá viðkomandi bónda er talsvert meira en meðalmjólkin er. Próteininnihald mjólkurinnar í þessu dæmi er þó undir viðmiðunarmjólkinni sem lækkar verð hennar lítillega á móti.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242