Frumutala í mjólk
Elin Nolsöe Grethardsdóttir, einn af gæðaráðgjöfum Auðhumlu svf., hefur skrifað hér á síðuna mjög áhugaverðan pistil um frumutölu í mjólk og hvað mjólkurframleiðendur þurfa helst að hafa í huga til að lækka hana.
Há frumutala segir til um júgurheilbrigði einstakra kúa og heilbrigðisástand hjarðarinnar í heild og þekkt er að afurðir og frumutala fylgjast að. Það er því mikið hagsmunamál fyrir bændur að frumutala hjarðarinnar í heild sé hófleg og að há frumutala, sem vísbending um sýkingu í júgra, sé meðhöndluð á viðeigandi hátt.
Hrámjólk er verðfelld ef þriggja mánaða faldmeðaltal frumutölu fer yfir 400.000 frumur/ml.
Pistilinn má finna hér.
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1242