Gæðaráðgjafar á Selfossi flytja sig um set
Gæðaráðgjafar Auðhumlu svf. sem staðsettir eru á Selfossi, þeir Sigurður Grétarsson og Steinþór Guðjónsson, hafa flutt sig um set úr Gagnheiði 20 að Austurvegi 65a (gömlu skrifstofur MBF). Gengið er inn í húsnæðið við hlið Kjötbúrsins og þar eru gæðaráðgjafarnir staðsettir á fyrstu hæð - gengið til hægri þegar inn er komið. Á efri hæð í sama húsnæði eru skrifstofur framkvæmdastjóra og ritara Auðhumlu svf.
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1242