Greiðslumark mjólkur 2025
Matvælaráðherra hefur fallist á tillögu Framkvæmdanefndar búvörusamninga um að greiðslumark mjólkur árið 2025 verði 152 milljónir lítra - sem þýðir aukningu um 0,5 milljónir lítra frá árinu 2024. Formlega verður greiðslumark ársins 2025 gefið út með reglugerðarbreytingu sem tekur gildi 1. janúar 2025.
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1242