12. febrúar 2026

Hækkun á afurðaverði til mjólkurframleiðenda frá 06. febrúar 2026

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til mjólkurframleiðenda sem tók gildi þann 06. febrúar 2026. Frá og með þeim degi mun lágmarksverð 1.fl. mjólkur til framleiðenda hækka um 0,89% - eða úr 141,39 kr/l. í 142,65 kr/l. 

Hækkun lágmarksverðs mjólkur til mjólkurframleiðenda er tilkomin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun sem byggði á verðlagi í september 2025. Hækkunin nú endurspeglar breytingu verðlagsgrundvallar frá september til desember 2025.

Þann 16. febrúar hækkar heildsöluverð á ógerilsneyddri mjólk í lausu máli um 0,89% og verður 160,06 kr/l. eða sem nemur veginni hækkun lágmarksverðs til bænda frá 1. september og hækkun vinnslu- og dreifingarkostnaði frá júní til desember 2025.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Ásgeir Símonarson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242