Hækkun á afurðaverði til mjólkurframleiðenda frá 1. október
Verðlagsnefnd búvara ákvað á fundi sínum þann 10. október sl. að hækka lágmarksverð á mjólk til bænda um 2,73% sem skal gilda frá 1. október 2024. Lágmarksverð 1. flokks mjólkur miðað við grundvallarefnainnihald mjólkur fer því úr 132,68 kr/l. í 136,30 kr/l.
Hækkunin er tilkomin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun nefndarinnar sem byggði á verðlagi í desember 2023 og tók gildi þann 1. janúar 2024.
Þrátt fyrir sýnilega hækkun á vinnslu- og dreifingarkostnaði sem og þessa hækkun á lágmarksverði til framleiðenda ákvað nefndin að heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum skuli haldast óbreytt að sinni.
Gildandi efnainnihald grundvallarmjólkur er 4,23% fita og 3,39% prótein
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1242