13. febrúar 2025

Hækkun á afurðaverði til mjólkurframleiðenda frá 17. febrúar 2025

Verðlagsnefnd búvara ákvað á fundi sínum þann 7. febrúar sl. að hækka lágmarksverð á mjólk til bænda um 0,46% sem skal gilda frá 17. febrúar 2025. Lágmarksverð 1. flokks mjólkur miðað við grundvallarefnainnihald mjólkur fer því úr 136,30 kr/l. í 136,93 kr/l.

Hækkunin nemur mældri hækkun verðlagsgrundvallar frá september til desember 2024. Síðasta verðhækkun til bænda var þann 1. október 2024.

Jafnframt ákvað verðlagsnefnd að heildsöluverð mjólkur skuli hækka frá sama tíma (17. febrúar) sem nemur veginni hækkun lágmarksverðs til bænda og hækkunar vinnslu- og dreifingarkostnaðar. Heildsöluverð mjólkur hækkar því um 1,0% og verður 165 kr./l. 

Á sama fundi staðfesti verðlagsnefnd tillögu Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM) um efnainnihald grundvallarmjólkur sem gildi frá 01. janúar 2025, þ.e. 4,23% fita og 3,38% prótein. Um er að ræða óbreytta fitu% en lækkun um 0,01% í prótein%.

Grundvallarefnainnihald mjólkur byggist á meðalefnainnihaldi mjólkur síðustu 3 ár á undan.

Fundargerð verðlagsnefndar búvöru frá 7. febrúar 2025

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242