Hækkun á afurðaverði til mjólkurframleiðenda frá 17. nóvember 2025
Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til mjólkurframleiðenda sem tekur gildi þann 17. nóvember 2025. Frá og með þeim degi mun lágmarksverð 1.fl. mjólkur til framleiðenda hækka um 0,18% - eða úr 141,13 kr/l. í 141,39 kr/l. Á sama tíma hækkar heildsöluverð á ógerilsneyddri mjólk í lausu máli um 0,16% og verður 158,65 kr/l.
Hækkun lágmarksverðs mjólkur til mjólkurframleiðenda er tilkomin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun sem byggði á verðlagi í júní 2025. Verðlagsgrundvöllur kúabús hækkar um 0,18% frá júní til september 2025.
Heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum sem nefndin verðleggur helst óbreytt skv. ákvörðun verðlagsnefndar.
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1242

