15. nóvember 2007
Menntamálaráðherra opnar ljóðavef Jónasar Hallgrímssonar
Það var sannkönnuð hátíðarstemmning sem ríkti í Iðnó þann 14. nóvember þegar menntamálaráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir opnaði ljóða- og náttúruvef Jónasar Hallgrímssonar. Með opnun á vefnum var hann formlega afhentur íslenska skólakerfinu enda var markmiðið að búa til ljóða- og kennsluvef þar sem margmiðlunartækni er notuð til þess að flétta fræðigreinar Jónasar saman við íslensk náttúruljóð.
Við athöfnina afhenti Guðbrandur Sigurðsson forstjóri Mjólkursamsölunnar menntamálráðherra fyrsta veggspjaldið.
Veggspjaldið með Jónasi er þriðja veggspjaldið sem Mjólkursamsalan gefur út undir merkjum átaksins Íslenska er okkar mál. Hið fyrsta kom út árið 1996, þar sem andlit Jóns Sigurðssonar var sett saman úr ljósmyndum af Íslendingum. Árið 2002, þegar 100 ár voru liðin frá fæðingu Halldórs Laxness, kom annað veggspjaldið út þar sem andlit Halldórs birtist gegnum tilvitnanir í íslensk bókmenntaverk. Með þessu þriðja veggspjaldi hefur MS dregið fram hina sönnu þrenningu íslenskrar menningar: land, þjóð og tungu.
Jónas Hallgrímsson er ástsælasta ljóðskáld Íslendinga og með orðsnilld sinni, þekkingu og ást á íslenskri náttúru kenndi hann þjóðinni að meta landið á alveg nýjan hátt í gegnum ljóð sín. Veggspjaldið samanstendur af 816 ljósmyndum úr íslenskri náttúru sem mynda í sameiningu andlit Jónasar. Má það teljast afar viðeigandi í ljósi þess hvað íslensk náttúra var Jónasi alla tíð kær og fáir hafa lýst henni betur.
Slóðin inn á vefinn er www.jonas.ms.is
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1242