Niðurstöður kvótamarkaðar 1. nóvember 2024
Matvælaráðuneytið hefur birt niðurstöður kvótamarkaðar vegna greiðslumarks í mjólk sem haldinn var þann 1. nóvember sl. Verslun með greiðslumark á þessum markaði gildir fyrir árið 2025.
Alls bárust Matvælaráðuneytinu 35 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 24.
Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum AFURÐ sem er greiðslukerfi landbúnaðarins og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.
Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 398 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 250 kr./ltr.
- Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 24.
- Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 35.
- Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði var 6.
- Fjöldi sölutilboða yfir jafnvægisverði var 4.
- Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 1.268.229 lítrar
- Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 913.450 lítrar
- Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 778.450 lítrar að andvirði 194.612.500 kr.
- Seljendur með tilboð á jafnvægisverði eða lægra eru 20 talsins og selja 76% af sínu framboðna magni.
- Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra eru 29 talsins og fá 100% af eftirspurðu magni í sinn hlut.
- Tilboð sem uppfylltu skilyrði um forgangsúthlutun til nýliða voru 2.
Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Matvælaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1242