Verð á umframmjólk og flutningskostnaður frá 1. mars 2012
Stjórn Auðhumlu hefur ákveðið verð á umframmjólk frá 1. mars 2012 kr. 42.- fyrir fyrstu 2% af umfram greiðslumark og kr. 36.- fyrir það sem umfram það er. Verð á umframmjólkinni markast helst af heimsmarkaðsverði á undanrennudufti og smjöri sem nú um stundir er um 25% lægra en það varð hæst á árinu 2011, en svipað og það var á sama tíma fyrir ári. Einnig hefur stjórnin ákveðið gjald á mjólkurflutninga frá 1. mars 2012. Félagsmenn greiða kr. 2,90 pr. lítra og utanfélagsmenn greiði kr. 3,50 pr. lítra. Verðið hækkaði síðast í árslok 2009 en sem kunnugt er hefur kostnaður við flutninga hækkað gríðarlega síðan þá.
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1242