27. febrúar 2026

Verð fyrir umframmjólk 2026

Stjórn Auðhumlu svf. ákvað á fundi sínum 26. febrúar 2026 að afurðastöðvarverð fyrir umframmjólk verði áfram óbreytt eða kr. 85.- á hvern innlagðan lítra á yfirstandandi verðlagsári 2026.

Þetta verð skal gilda þangað til annað verður ákveðið en þetta verð mun ekki lækka á yfirstandandi verðlagsári. Taka skal tillit til efnainnihalds mjólkurinnar líkt og hefðbundið er og út frá þessu verði skal jafnframt reikna gæðaálag og verðfellingar.

Uppbætur verði svo greiddar eftir að lokauppgjör ársins hefur farið fram ef tilefni gefst til.

Útflutningsuppgjör ársins 2025 leiðir í ljós að skilaverð útflutnings nam um 81,5 kr/l. að jafnaði á meðan Auðhumla svf. greiddi 85 kr/l. sem grundvallarverð fyrir umframmjólk. Uppbætur á umframmjólk ársins 2025 koma því ekki til að þessu sinni.

Umframmjólk ársins 2025 var alls 5.086.726 lítrar, þar af er umframmjólk á starfssvæði Auðhumlu svf. 4.920.503 lítrar. Auðhumla svf. greiddi mjólkurframleiðendum þar með u.þ.b. 17,2 millj. kr. meira fyrir umframmjólk 2025 en fékst fyrir hana að söluverðmæti.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Ásgeir Hrafn Símonarson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1240