28. desember 2023

Verðhækkun á hrámjólk

Verðlagsnefnd búvöru kom saman til fundar þann 20. desember sl. og tók ákvörðun um að hækka lágmarksverð mjólkur til bænda um 2,25%.

Frá 1. janúar 2024 mun lágmarksverð mjólkur til bænda því hækka í 132,68 kr/l. úr 129,76 kr/l. Hækkunin nemur 2,92 kr/l.

Frá 8. janúar mun heildsöluverð hrámjólkur jafnframt hækka um 2,09% og verður 148,56 kr/l. í stað 145,53 kr/l.  áður. Hækkunin nemur 3,04 kr/l.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242