Lyfjaleifar í mjólk - verðfellingar og verklag
Óhöpp vegna þess að sýklalyf komast í tankmjólk valda árlega nokkru tjóni, bæði fyrir mjólkurframleiðandann sem fyrir því verður og jafnframt fyrir Auðhumlu svf. sem afurðastöð. Öll mjólk frá bændum sem kemur til inndælingar í afurðastöð er lyfjaprófuð og ef minnsti vottur af lyfjaleifum finnast í henni er mjólkinni umsvifalaust og undantekningarlaust fargað. Slík mjólk kemst því aldrei inn í afurðastöð.
Oftast verða óhöppin vegna þess að kýr sem verið er að meðhöndla er mjólkuð í ógáti og mjólkin fer saman við aðra mjólk. Einnig kemur fyrir að mjaltatæki eru sett er á kú sem er í meðferð og það uppgötvast áður en mjólkin fer í tankinn en þess er ekki gætt að þvo spenahylki og mjólkurlögn nægilega vel á eftir. Þá hefur komið fyrir að sáraúða með sýklalyfjum hefur verið úðað á spenasár og það hefur nægt til þess að lyf hafa fundist í mjólkinni.
Til þess að koma í veg fyrir óhöpp af þessu tagi er mikilvægt að kýr, sem eru í meðferð, séu vel merktar á meðan þær eru í meðhöndlun, t.d. með litríku bandi um báða afturfætur, þar sem mjólkað er í gryfju, eða merki á hala þar sem mjólkað er í básum eða mjaltaþjóni. Þar sem tölvukerfi eru notuð er mikilvægt að skrá strax í tölvuna og tvískoða að rétt númer hafi verið skráð svo kýr í meðhöndlun sé ekki mjólkuð af gáleysi.
Svokallaður útskolunartími lyfja er mislangur. Dýralæknar gefa upp útskolunartíma hvers lyfs og skal ávallt fara eftir þeim fyrirmælum. Einnig er hægt að afla sér upplýsinga um helstu sýklayf og útskolunartíma þeirra í sérlyfjaskrá. Í vissum tilfellum gefur sérlyfjaskrá upp styttri útskolunartíma fyrir spena sem lyf hafa ekki verið sett í. Í ljósi reynslunnar er ekki mælt með því að farið sé að mjólka þá spena á undan meðhöndluðum spenum.
Dæmi um lyfjaleifar og hvað það þýðir í verðfellingu
Ef lyfjaleifar finnast í mjólk framleiðanda sem send hefur verið í afurðastöð þá skal það innlegg ekki skráð og að auki skal innlegg viðkomandi viku verðfellt um 60% af afurðastöðvaverði mjólkur. Ef um fleiri en eitt tilfelli er að ræða frá sama framleiðanda innan sama mánaðar, þá verðskerðist innlegg mánaðar um 15% fyrir hvert tilfelli.
Hér má nálgast leiðbeiningar um verklag ef lyf greinist í mjólk frá framleiðanda
Hér má nálgast leiðbeiningar um verklag ef framleiðanda grunar að lyf hafi komist í tankmjólk